Nordic Chef og Nordic Waiter keppnin 2018

Hinrik Lárusson sem starfar á Grillinu á Hótel Sögu vann silfurverðlaun í Nordic Junior Chefs keppninni sem fór fram í Herning í Danmörku í dag. Svíþjóð var í fyrsta sæti í sömu keppni og Finnland í því þriðja

Hafsteinn Ólafsson sem er Kokkur ársins 2017 og starfar á Sumac Grill + Drinks keppti í Nordic Chef. Í framreiðslu var það Lúðvík Kristinsson frá Grillinu sem keppti fyrir Íslands hönd. Hvorugur þeirra náði á pall í sínum keppnum.

Klúbbur matreiðslumeistara sendi þessa þrjá keppendur til leiks og rekur klúbburinn afreksstarf í matreiðslu og framreiðslu, keppnisstarf ungra matreiðslumanna í Kokkalandsliðinu og keppnina Kokkur ársins ásamt þátttöku í alþjóðlegum keppnum eins og hér um ræðir.

Skipulag keppninnar var í höndum Norðurlandasamtaka matreiðslumeistara og fór keppnin fram í Herning samhliða matvælasýningunni Foodexpo.