Miðvikudaginn 15. apríl nk. mun Gert Klötzke formaður Culinary Commitee WACS koma til landsins og halda WACS dómaranámskeið fyrir Kokkalandsliðið.

Það eru 5 laus sæti í boði fyrir þá sem áhuga hafa.

Námskeiðið
kostar kr 20.000 fyrir skuldlausa félaga í KM og 40.000 fyrir aðra.

Skráning á netfangið [email protected] og mun reglan fyrstur kemur fyrstur fær gilda.

Athugið að námskeiðið tekur allan daginn, nánari tímasetningar og staðsetning verður tilkynnt síðar.